Almennt

            Þetta er upplýsingavefur Vegagerðarinnar fyrir sjófarendur við Ísland, Sjólag.is. Gögnin sem birtast á vefnum eru ýmist mælingar eða spár og koma frá Vegagerðinni, Veðurstofu Íslands og Evrópsku veðurstofunni. Kortagrunnurinn kemur frá Landmælingum Íslands og Open Street Maps.

            Gögn úr mælitækjum má nálgast í opnum vefþjónustum á gagnaveita.vegagerdin.is

            Ölduspá á grunnslóð
            Vegagerðin vinnur sérstakar spár fyrir ákveðin grunnslóðarsvæði við Íslands. Ölduspá fyrir þau og mæligögn er hægt að nálgast með því að velja svæðin á kortinu eða í lista. Von er á að fleiri spásvæði bætist við vefinn.

            Fyrirvarar
            Gögn frá mælitækum, svo sem frá veðurstöðvum og ölduduflum eru ekki yfirfarin þegar þau birtast á kortinu og því birt með þeim fyrirvara að í þeim kann að reynast skekkja.

            Vefurinn er enn í þróun. Enn er hægt að nálgast eldri framsetningu gagnanna á vef Vegagerðarinnar, vegagerdin.is

            Athugasemdir, hugmyndir eða ábendingar um þróun sjolag.is má senda á netfangið: vegagerdin@vegagerdin.is

            Leiðbeiningar
            Hægt er að velja staðsetningu, punkt, á kortinu og birtast þá spár um ölduhæð, stefnu þeirra og sveiflutíma auk veðurspár og spár um sjávarföll. Vakin er athygli á að hér er alltaf um spá að ræða.

            Séu upplýsingar úr ákveðnu öldudufli skoðaðar birtast bæði mæligögn en um leið möguleiki á að skoða spá fram í tímann. Mikilvægt er að rugla þessu ekki saman. Þessi gögn er hægt að skoða í hvoru tveggja myndrænni framsetningu og í töflum.

            Spáð ölduhæð í metrum

            • 20+
            • 12 – 20
            • 10 – 12
            • 8,0 – 10
            • 6,0 – 8,0
            • 5,0 – 6,0
            • 4,0 – 5,0
            • 3,5 – 4,0
            • 3,0 – 3,5
            • 2,5 – 3,0
            • 2,0 – 2,5
            • 1,5 – 2,0
            • 1,0 – 1,5
            • 0,7 – 1,0
            • 0,5 – 0,7
            • Spágögn ekki tiltæk

            Tákn

            Upplýsingatákn

            • Öldudufl
            • Myndavél
            • Viti
            • Höfn
            • Veðurstöð
            • Spápunktur

            Veðurtákn

            • Vindátt
            • Logn

            Annað

            • Stillingar
            • Um sjólag.is
            • Þín staðsetning

            Vefurinn er unninn af sérfræðingum Vegagerðarinnar og Kolofon. Verkefnastjórn var í höndum Greips Gíslasonar og Guðfinns Sveinssonar. Vefurinn er rekinn af Vegagerðinni.